21.5.2012 | 11:59
Haukahettupeysur
Fyrir síðasta sumar vorum við með Haukahettupeysur til sölu á stelpurnar,foreldra og systkini.
Það var svo mikil undirtekt og allir ánægðir með peysurnar að við ákváðum að bjóða upp á þær aftur núna fyrir komandi sumar.
Peysurnar eru merktar með logoi Haukana að framan og svo nöfn stelpnana á ermunum.
Á minni peysu stendur haukamamma á bakinu og hjá kallinum haukapabbi:)
Við verðum með mátun á peysum á fimmtudaginn milli 17-18 upp á Ásvöllum.
Peysurnar kosta 3500 með merkingu. En það þarf að greiða peysurnar við pöntun.
Foreldrafélagið
21.5.2012 | 11:46
Liðin á Vísmótinu
Lið 1 Elín Klara, Birgitta Kristín, Viktoría Diljá, Alexandra, Berglind, May, Rannveig.
Lið 2 Bjarney, Telma Melsteð, Bryndís Bjarna, Brynja, Mikaela, Sylvía, Sara Katrín.
Lið 3 Louisa, Laufey, Kolbrún, Sólveig, Kristín Björk, Natalía Nótt, Ragnheiður Arn, (Eva)
Það er ekki komið leikjaplan en samkvæmt pósti sem ég fékk frá þrótti eiga lið 1 og 2 að spila fyrir hádegi (8-12) en lið 3 eftir hádegi (12-15)Ég mun setja inn leikjaplanið um leið og það kemur
Það er nóg pláss ef það eru fleirri sem vilja vera með
kv. Steini
Fjáröflun | Breytt s.d. kl. 11:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.5.2012 | 15:47
Sunnudagsæfingar á Ásvöllum kl.11-12
Viljum minna alla á að risinn er hættur þannig að æfingarnar okkar eru nú á Ásvöllum frá 11-12 á sunnudögum
kv. Steini og Andri
14.5.2012 | 20:34
Fimmtudagsæfingar
Á síðasta fimmtudag var síðasta fjölgreinaæfinginn hjá okkur. Í staðin fyrir að missa út æfingu þá ætlum við að vera með æfingu á grasinu milli 17-18 á fimmtudögum(þrjár fótboltaæfingar í viku).
kv. Steini og Andri
11.5.2012 | 09:30
Vísmót Þróttar
Jæja þá er að styttast í mót nr.2 hjá okkur á þessu sumri. Við erum með skráð 3 lið á Vísmótið hjá þrótti þannig að við verðum að fá góða skráningu.
Vísmótið er haldið 26. maí í laugardalnum á þróttarasvæðinu við hliðina á laugardalsvelli. Á mótinu er spilað í 7 manna liðum og er leiktími 1x12 mín. Þetta mót hefur verið mjög flott síðustu árinn og verður þar enginn breyting á í ár. Það kostar 2500 krónur á hverja stelpu á mótið. Á þessu móti fá allar verðlaunarpening fyrir þáttöku og eitthvað fleirra.
Endilega skráið ykkur sem fyrst
síðasti skráningardagur er sunnudagurinn 20 maí (verið búinn að skrá þá
)
kv. Steini og Andri
6.5.2012 | 18:52
Takk fyrir frábæran dag
Vill þakka ykkur öllum fyrir frábæran dag í víkinni þar allar stelpurnar stóðu sig með miklum sóma.
Það eru komnar myndir inná http://www.flickr.com/photos/kfc-fotbolti endilega kíkið á þær :)
kv. Steini og Andri
3.5.2012 | 21:41
Lið 3 á kfc
Lið 3 á kfc verður skipað stelpum úr 8 flokk. Það er mæting hjá þeim 11.25 niður á gerfigrasið í víkinni . Hekla Sif er í þessu liði. Brynja (mamma Heklu) kommentaðu á þetta þegar þú sérð þetta
.
kv. Steini
3.5.2012 | 19:59
Smá breyting á leikjaplani hjá liði 2
Fyrsti leikur fellur niður (Haukar-Stjarnan) þannig að við þurfum ekki að mæta fyrr en 14.25 niður á völl. Aðrir leikir eru eins.
kv. Steini
2.5.2012 | 22:01
KFC mótið liðinn og leikjaplanið
Lið 1 Birgitta Kristín, Alexandra, Berglind, Elín Klara, May, Viktoría Diljá, Rannveig Þóra, Sara Katrín
11.30-11.42 Haukar-Breiðablik
12.00-12.12 Haukar-Víkingur
12.30-12.42 Haukar-Gestalið ?
13.00-13.12 Haukar-Grindavík
13.30-13.42 Haukar-Selfoss
Stelpurnar í þessu liði þurfa að vera mættar á völlinn í síðastalagi 11.10 á sunnudagsmorgunnin
Lið 2 Telma Melsteð, Bjarney, Auður, Laufey Arna, Brynja, Eva Dís, Kristín Björk, Mikaela Nótt
14.15-14.27 Haukar-Stjarnan
14.45-14.57 Haukar-FH
15.15-15.27 Haukar-Breiðablik
15.45-15.57 Haukar-Grindavík
16.15-16.27 Haukar-Þróttur
Stelpurnar í þessu liði þurfa að vera mættar á völlinn í síðastalagi 13.55 á sunnudaginn
kostnaður við þetta mót er 2000kr á hverja stelpu og greiðist það fyrir fyrsta leik. Þær sem vilja nota fjáröflunina endilega sendið þórdísi línu á tore@internet.is
Eins og flestir vita þá er mótið haldið í í Víkinn í fossvogi (rétt hjá sprengisandi)
Bílastæði við Víkina eru því miður af skornum skammti en til þess að greiða fyrir umferð við mótssvæðið munum við stjórna umferðinni en bendum fólki einnig á að mæta tímanlega og leggja frekar á eftirtöldum stöðum:
Fossvogsskóli. Beygt niður Haðaland af Bústaðavegi, keyrt niður í botn þar sem beygt er til vinstri að Fossvogsskóla.
Fossvogsbrún. Beygt útaf í hringtorginu við Smiðjuveg.
Það tekur um 5 mínútur að ganga frá báðum þessum stöðum að Víkinni.
Ef það eru eitthverjar spurningar þá er bara að hringja og spyrja
kv. Steini s.6992143
29.4.2012 | 21:53
KFC mót Víkings
Á næsta sunnudag (6 maí) er kfc mót víkings. Við skráðum 3 lið til leiks(21 stelpu) þannig að það verða allar að skrá sig
Þetta verða 4 leikir á hvert lið og er áætlað að þetta taki um 2 klst á lið. Þetta er mjög flott mót þar sem allir fá verðlaunarpening og máltíð frá kfc.
skráning hefst núna og endar á miðvikudag kl.22(svo að ég hafi tíma til að kaupa leikmenn ef það vantar uppá)
koma svo allar að skrá sig
kv. Steini og Andri
Síður
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.5.): 0
- Sl. sólarhring: 136
- Sl. viku: 380
- Frá upphafi: 6434
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 153
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Nýjustu athugasemdir
- Liðin á Vísmótinu: Takk Steini þú ert snillingur :) 21.5.2012
- Liðin á Vísmótinu: Sæll Albert Við færum bara Sólveigu í lið 2 þá er hún að spila ... 21.5.2012
- Liðin á Vísmótinu: Var búið að segja mér að leikið yrði fyrir hádegi það er 7. flo... 21.5.2012
- Haukahettupeysur: Frábært framtak. Við komum pottþétt og verslum peysur á fimmtud... 21.5.2012
- Haukahettupeysur: Steini þjálfari ætlar að fá eina peysu :) 21.5.2012





