Færsluflokkur: Fjáröflun
Fjáröflun | 5.3.2013 | 16:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Skilaboð frá FH:
Næstkomandi sunnudag verður Kaplakriki undirlagður við frágang vegna árshátíðar Hafnarfjarðarbæjar. Húsið verður því lokað fram til 12:00 á meðan mesta vinnan fer fram, Risinn verður þó opinn og ættu ekki neinar æfingar að falla niður en iðkendur þurfa að ganga meðfram girðingunni fram til 12:00, eftir það verður húsið opið öllum. Mikilvægt er að koma þeim skilaboðum til þeirra sem eiga æfingar frá 09 – 12 svo fólk verði ekki að reyna að ganga í gegnum húsið.
Fjáröflun | 26.2.2013 | 16:42 (breytt kl. 16:43) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Við ætlum að hafa smá þema á sunnudaginn í Risanum.
Það verður buff þema og hvetjum við auðvitað allar til að taka þátt :)
Sjáumst hress og kát í Risanum á sunnudaginn,
kv. Þjálfarar
Fjáröflun | 22.2.2013 | 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við þjálfarar þökkum fyrir skemmtilega og öðruvísi viku sem lauk núna um helgina og vonum að þið hafið haft gaman af líka :)
En núna höldum við ótrauð áfram og markmið æfinganna verður auðvitað að læra meira og bæta sig með hverjum deginum !
Við sjáumst hress og kát á næstu æfingu, öskudaginn !
kv. Þjálfarar
Fjáröflun | 12.2.2013 | 10:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Á föstudaginn 8.febrúar ætlum við að hittast öll á Ásvöllum og fá okkur pitsu og horfa á vídeó.
Maeting kl 17 og verdum til rumlega 19.
Allar stelpurnar í flokknum eru hvattar til að mæta og endilega að taka með sér vinkonu líka !
Taka með sér 600kr hver fyrir pitsu og drykk.
Sjáumst hress á æfingunni á morgun,
kv. Þjálfarar
Fjáröflun | 5.2.2013 | 19:57 (breytt 6.2.2013 kl. 11:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
# Vinkonuvikan hefst á miðvikudaginn, 6.febrúar, en nánir upplýsingar í bloggfærslunni hér fyrir neðan. Skemmtileg og fjölmenn vika sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.
# Íslensk veðurátta er alveg stórkostleg. Minnum á að stelpurnar séu vel klæddar fyrir æfingar enda allra veðra von. Við frestum eða sleppum aldrei æfingu og gerum alltaf það besta úr hlutunum en ef veður er extra vont, þá reynum við að komast eitthvað inn.
# Mótamál í sumar eru orðin ljós og lítur svona út fyrir 7.fl kvenna:
Mót | Staðsetning | Dagsetning | Tegund | Verð |
KFC mót Víkings | Fossvogur | 4. til 5.maí | Dagsmót | 2000kr |
VÍSmót Þróttar | Laugardalur | 25. til 26.maí | Dagsmót | 2000kr |
Landsbankamótið | Sauðárkrókur | 29. til 30.júní | Helgarmót | 8000kr |
Símamótið | Kópavogur | 18. til 21.júlí | Helgarmót | 7000kr |
Arionbanka mót Víkings | Fossvogur | 17. til 18.ágúst | Dagsmót | 2000kr |
Ath. Þau mót sem eru skráð sem dagsmót verða einn dag þó svo að það sé gefið upp tvo daga í dagsetningunum. Það verður því annar dagurinn af þeim sem er gefinn upp sem verður spilað en það mun alltaf verða ljóst þegar nær dregur því móti.
Ath. Verð sem gefið er upp er áætlað miðað við síðastliðin ár og per keppandi.
kv. Þjálfarar
Fjáröflun | 3.2.2013 | 21:22 (breytt kl. 21:22) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þann 4.febrúar næstkomandi munum við þjálfarar standa fyrir vinkonuviku í fótboltanum hjá Haukum. Vikan verður þannig að hver og einn iðkandi tekur vinkonu sína með sér á æfingar í heila viku. Vinkonan má ekki vera að æfa fótbolta hjá Haukum í augnablikinu :)
Vikan yrði nánast óbreytt frá því sem hefur verið:
Miðvikudagsæfing kl 16:00
Fimmtudagsæfing kl 17:15 (inni á Ásvöllum)
Sunnudagsæfing kl 12:00 (í Risanum)
+ Félagslegt sem við myndum kynna þegar nær dregur.
Núna fá stelpurnar tækifæri til að draga vinkonu sína með á æfingu og kenna þeim alla flottustu taktanna og sýna þeim hvernig við skorum mörkin. Vinkonurnar munu parast saman í æfingum svo það er engin ástæða til að vera feimin.
Nú getið þið farið að bjóða vinkonu ykkar og megið svo endilega skella því í athugasemdir hver vinkonan verður hjá hverri og einni :)
Þetta verður skemmtileg vika og við þjálfararnir erum virkilega spenntir !
Mót sumarsins eru farin að skýrast og við lofum því að upplýsingar um þau koma inná bloggsíðuna í næstu viku.
kv. Þjálfarar
Fjáröflun | 25.1.2013 | 09:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Við munum spila æfingaleik sunnudaginn 20.janúar í Risanum við Fjölni kl 11.00.
ATH ! Kl 11.00 í Risanum, allir að skrá sig í athugasemdum hverjir komast :)
Verðum svo með vinkonuviku í byrjun febrúar og munum útskýra það betur þegar nær dregur !
Minnum svo á æfinguna á miðvikudaginn kl 16.00 :)
kv. Þjálfarar
Fjáröflun | 15.1.2013 | 12:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Sæl öll sömul
Vegna þess hve vindurinn er sterkur verðum við inni í dag, miðvikudaginn 9.janúar
Mætið inn í íþróttasalinn á Ásvöllum (B-hliðin) kl 16.00
kv. Þjálfarar
Fjáröflun | 9.1.2013 | 14:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sæl öll og gleðilegt nýtt ár :) Ég vona að allir hafi átt gleði og hamingjuríka hátíð og að stelpurnar okkar hafi fengið flotta pakka. Nú styttist í fyrstu æfingu ársins hjá okkur en hún verður miðvikudaginn 9.janúar kl.16.00 á gerfigrasinu ásvöllum.
Við hlökkum til að sjá ykkur allar á fyrstu æfinguni
kv. Steini og Andri
ps. Passið ykkur á tröllunum og álfunum á þrettándanum :)
Fjáröflun | 2.1.2013 | 17:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)