Þá er skráningu lokið á Símamótið. Það verður hádegismatur fyrir stelpurnar á föstudeginum og laugardeginum og er þá gjaldið með mat kr. 8.000 á stelpu. Foreldrar þurfa að leggja inn sem allra fyrst (alls ekki seinna en á mánudag) á reikning 140-26-100478 kt: 141080-3699. Einhverjar stelpur eiga reikning og við biðjum foreldra að senda Þórdísi tölvupóst á tore@internet.is og mun hún sjá um greiðsluna fyrir þær stelpur.
Hlökkum til að sjá alla hressa næstu helig :)
Athugasemdir
Auður sig er búin að borga :) - Auður fékk haukatreyju í afmælisgjöf og vill setja númer á hana - var búin að heyra að hvað tala sem er kæmi til greina svo lengi sem það væri slétt tala - hvað segjið þið ?
Auður Sigurþórs (IP-tala skráð) 6.7.2012 kl. 23:11
Ég myndi hafa samband við Guðbjörgu Norðfjörð varðandi val á númeri gudbjorg@haukar.is. Þegar mín stelpa fékk númer á sína treyju þá var það slétt tala en hún gat ekki valið hvaða tölu sem er.
Bkv. Helga Huld
Helga Huld (IP-tala skráð) 7.7.2012 kl. 00:01
Nei það er rétt hjá Helgu Huld númerið þarf að vera laust.
Svo þú getur hringt á Ásvelli til að vita hvaða númer er laust.
kv Þórdis
Þórdís Rúriksdóttir (IP-tala skráð) 8.7.2012 kl. 18:25
Kolbrún ætlar að vera með :) Búin að leggja inn á reikninginn.
Rósa og Kolbrún (IP-tala skráð) 10.7.2012 kl. 18:38
Hæ er komin einhver tímatafla fyrir Símamótið..? :)
Guðrún Hauksdóttir (IP-tala skráð) 11.7.2012 kl. 07:30
Sorry, hef ekki verið í tölvupóstsambandi s.l. daga, en var að greiða inn á reikninginn fyrir Sólveigu.
Einhver tímatafla komin?
Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 11.7.2012 kl. 13:38
Ég mætti ekki á fundinn varðandi símamótið en ætlið þið í skrúðgönguna á morgun (fimmtudag)?
Rósa og Kolbrún (IP-tala skráð) 11.7.2012 kl. 17:00
Vissum ekki að það væri fundur varðandi símamótið - en okkur þætti vænt um að fá dagskrá hérna inn á bloggið og ef það er eitthvað sértakt sem kom fram á fundinum sem gott er að vita :)
Auður sigurþórs (IP-tala skráð) 11.7.2012 kl. 19:02
Já Haukastelpurnar labba saman í skrúðgöngunni annað kvöld.
Áætlunnin er að stelpurnar verði allar með afró fléttur og þær stelpur sem vantar að láta að flétta sig mæti á ásvelli kl :15 á morgun og einnig þeir foreldrar sem geta rétt hjálparhönd.
Þórdís Rúriksdóttir (IP-tala skráð) 11.7.2012 kl. 19:52
Erum við að tala um margar litlar fléttur í allt hárið eða margar fastarfléttur ???:)
Guðrún Hauksdóttir (IP-tala skráð) 11.7.2012 kl. 20:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.